ATH: Þessi frétt er eldri en tveggja ára gömul.
Kærleiksdagur í Miðbergi á aðventunni
Laugardaginn 8. desember stendur frístundamiðstöðin Miðberg fyrir Kærleiksdegi til að styrkja Umhyggju, styrktarsjóð langveikra barna.
Á Kærleiksdegi gefst Breiðhyltingum og öðrum gestum tækifæri til þess að eiga notalega stund með fjölskyldunni og styrkja um leið gott málefni.
Boðið verður upp á bingó, piparkökuskreytingar, kertaföndur og myndatöku með jólasveininum. Þá mun kaffihús Miðbergs bjóða upp á heitt kakó og vöfflur með rjóma.
Dagskrá á Kærleiksdegi hefst klukkan 13.00 og stendur til 16.00.