Jón Gnarr er jólasveinninn Geðgóður

Jón Gnarr borgarstjóri brá sér í jólasveinabúning í gær til styrktar verkefninu Geðveik Jól. Jólasveinninn nefnist GEÐgóður og hefur verið ráðinn kosningastjóri jólalagasamkeppni Geðhjálpar. Jón var hinn ánægðasti í búningnum og sagði „Ef allir eru geðgóðir þá verða þetta án efa geðveik jól.“



Geðveik jól er árleg jólalagasamkeppni milli vel valinna fyrirtækja og stofnanna. 15 fyrirtæki hafa tekið áskorun um að velja eða semja jólalag og framleiða myndband því til stuðnings. Geðhjálp fær jólalögin að láni, heldur utan um SMS-kosningu og býður þjóðinni að kjósa „geðveikasta jólalagið árið 2012”.Jólalögin verða þeirra framlag inn í jólalagakeppnina Geðveik Jól 2012 sem hefst 5. desember

Allur ágóði kosningarinnar rennur beint til starfsemi Geðhjálpar.

Nánari upplýsingar má finna á www.gedveikjol.is og á facebook síðu verkefnisins https://www.facebook.com/www.gedveikjol.is