Jólasöngur í jólaskógi Ráðhússins
Borgarkórinn, kór starfsmanna Reykjavíkurborgar hefur verið starfræktur í nokkur ár og eru félagar um 30 talsins.
Á stefnuskrá kórsins er að vera alltaf tilbúin með lög til að syngja við ýmis tilefni. Kórinn leggur áherslu á að æfa lög sem tengjast Reykjavík með einhverjum hætti, en syngur líka ýmislegt annað. Að .þessu sinni ætlar kórinn að syngja nokkur jólalög í Tjarnarsalnum í Ráðhúsinu og hefjast tónleikarnir klukkan 16:00
Stjórnandi kórsins er Gróa Hreinsdóttir.
Á morgun 21. desember mun Lögreglukórinn flytja jólalög í Tjarnarsalnum. Lögreglukórinn var stofnaður árið 1934 og er því 78 ára gamall. Klukkan 16 kemur svo kvartettinn Kvika sem einnig mun flytja jólalög.
Um að gera að taka sér hlé frá jólaamstrinu og hlýða á falleg jólalög í Jólaskógi Ráðhússins.