Jólapappírinn í bláu tunnuna
Jólapappír þarf að flokka frá öðru sorpi en pappírinn má fara í bláu tunnuna með öðrum pappír og pappa. Sterkrauðan jólapappír ætti þó ekki að flokka til endurvinnslu þar sem liturinn getur haft áhrif á endurunna pappírinn.
Hátíðirnar sem í hönd fara eru annasamur tími fyrir Sorphirðu Reykjavíkur. Sorphirðan verður að störfum á Þorláksmessu svo flestir fái hreinsun fyrir jólin og eins laugardag fyrir áramót.
Um jól og áramót fellur hins vegar til mikið magn umbúða og annars sorps og því áríðandi að flokka sorp og skila til endurvinnslu eins og kostur er. Ef fólk hefur ekki tamið sér að flokka sorp verða tunnurnar fljótar að fyllast yfir hátíðirnar. Það má skila umbúðum, plasti, pappír og pappa endurgjaldslaust á grenndarstöðvar og endurvinnslustöðvar Sorpu.
Best er að endurnýta gjafapappír eins oft og kostur er. Á veraldarvefnum er hægt að finna ótal góðar hugmyndir um hvernig hægt er að endurvinna gjafapappír eða hvernig hægt er að búa til pakka úr því sem til er á flestum heimilum sbr. blöð, auglýsingapésar, snæri, litir og tölur. Einnig er gott að huga að því þegar keyptur er gjafapappír hvort hann sé endurvinnanlegur.
Á vefsíðunni www.pappirerekkirusl.is má finna sorphirðudagatal borgarinnar, staðsetningu grenndarstöðva í borginni og aðrar upplýsingar um endurvinnslu.