Jafningafræðslan hlýtur Viðurkenningu Barnaheilla
Í dag var Hinu Húsinu/Jafningjafræðslunni veitt viðurkenning Barnaheilla árið 2012.
Viðurkenningin er veitt fyrir sérstakt framlag í þágu barna og mannréttinda og var afhent í Þjóðmenningarhúsinu við hátíðalega athöfn. Forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir og Kolbrún Baldursdóttir formaður Barnaheilla, fluttu ávörp.
Vigdís Finnbogadóttir verndari Barnaheilla var viðstödd afhendingu viðurkenningarinnar.
Þessi viðurkenning er rós í hnappagatið fyrir frábært starf Jafningjafræðslunnar og frábærs starfs stjórnenda og starfsmanna Hins Hússins.
http://www.barnaheill.is/Frettir/Frett/jafningafraedslanhlyturvidurkenningubarnaheilla.