Innköllun vöru vegna eiturefnisins Ochratoxin
Fréttatilkynning frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur
Efni:
SP Company ehf hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, innkallað og stöðvað sölu á rúgmjöli merkt Melvit ((Razowa maka zytnia do wypieku domowego chleba (Wholemeal rye flour for baking home-made bread)), vegna eiturefnisins Ochratoxin A. Þar sem staðfest er að Ochratoxin A hafi mælst yfir mörkum í þessari vöru er um að ræða matvæli sem getur verið heilsuspillandi.
Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:
Vörumerki: Melvit
Vöruheiti: Razowa maka zytnia do wypieku domowego chleba (Wholemeal rye flour
for baking home-made bread)
Upprunaland: Pólland
Innflytjandi og dreifingaraðili: SP Company ehf.
Nettóþyngd: 1 kg.
Lotunúmer: 41-05-21C og 38-06-18D
Best fyrir: 21.11.2012 og 18.01.2013
Dreifing: Mini market, Drafnarfelli 6-14, Reykjavík og Mini market, Hringbraut 92, Reykjanesbæ
Viðskiptavinir sem keypt hafa rúgmjöl merkt Melvit með best fyrir dagsetningum 21.11.2012 og 18.01.2013 eru beðnir um að neyta hennar ekki og skila í verslanir Mini market eða farga henni.