Innköllun af markaði á Kötlu sítrónudropum vegna aðskotahluta
Katla matvælaiðja ehf. hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, ákveðið að innkalla af markaði eftirfarandi vöru þar sem aðskotahlutir (svartar gúmmí agnir) hafa fundist í henni.
Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:
Vörumerki: Katla.
Vöruheiti: Sítrónudropar.
Framleiðandi: Katla matvælaiðja ehf., Kletthálsi 3, 110 Reykjavík.
Magn: 30 ml.
Umbúðir: Glerflöskur.
Best fyrir: 10.11.14 og 29.06.15.
Strikanúmer: 5690591440009.
Dreifing: Um land allt.
Viðskiptavinir sem keypt hafa Kötlu sítrónudropa með best fyrir dagsetningum 10.11.14 29.06.15 eru beðnir um að neyta hennar ekki eða farga eða skila vörunni til Kötlu matvælaiðju ehf., Kletthálsi 3, 110 Reykjavík.