Í skóginum stóð kofi einn

Sunnudaginn 16. september kl. 15.00 opnar sýning á aðalsafni Borgarbókasafns, Tryggvagötu 15, á myndum úr þýsku barnabókinni „Í skóginum stóð kofi einn“ (eða Steht im Wald ein kleines Haus) eftir Jutta Bauer. Við opnunina mun höfundurinn leiða gesti í gegnum sýninguna með dansi og söng, en bókin byggir á vísunni um lítið héraskinn og veiðimann, sem margir þekkja.

Sýningin er samstarfsverkefni Borgarbókasafnsins, Mýrinnar – alþjóðlegrar barnabókmenntahátíðar, og Goethe stofnunar.

Allir eru velkomnir, ekki síst börn og foreldrar. Léttar veitingar verða í boði.

Dagskrá Mýrinnar, sem sem hefur hina skemmtilegu yfirskrift „Matur út í mýri" má kynna sér hér:

Facebook: http://www.facebook.com/MyrinBarnabokmenntahatid.

Heimasíða: http://myrin.is/2012/09/06/matur-uti-i-myri-2012-dagskra.