Hvatningarverðlaun veitt fyrir frístundastarf
Hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs vegna frístundastarfs 2012 voru veitt í liðinni viku. Þau koma að þessu sinni í hlut tveggja frístundamiðstöðva, eins frístundaklúbbs og eins verkefnastjóra, en alls barst 31 tilnefning til verðlaunanna vegna 23 verkefna.
Verðlaunin hlutu að þessu sinni:
- Frístundamiðstöðin Kampur fyrir verkefnið Drullumall – tónleikaröð félagsmiðstöðva á vegum hennar. Jón Gnarr, borgarstjóri og Eva Einarsdóttir afhentu verðlaunin á Drullumalls tónleikum 24. október. Í verðlaun fengu þau hljóðkort sem vonandi nýtist þeim í áframhaldandi tónlistarsköpun. Unglingarnir í Drullumallsnefndinni og Andrea Marel, verkefnastjóri í félagsmiðstöðinni 105 tóku á móti verðlaununum.
- Frístundamiðstöðin Frostaskjól fyrir verkefnið Himingeiminn – stjörnutjald í Vesturbæ. Eva Einarsdóttir afhenti verðlaunin á stjórnendafundi í Frostaskjóli 25. október. Í verðlaun fengu þau myndina ,,Náttúrubörn“ eftir listakonuna Iréne Jensen. Guðrún Björk Freysteinsdóttir, deildarstjóri í Frostaskjóli tók á móti verðlaununum.
- Frístundaklúbburinn Höllin – frístundastarf fyrir 10-16 ára börn og unglinga með fötlun. Oddný Sturludóttir og Eva Einarsdóttir afhentu verðlaunin í Höllinni 25. október. Í verðlaun fékk klúbburinn glaðlega og litríka mynd eftir listakonuna Mæju. Ásdís Sigurjónsdóttir og Sif Ragnarsdóttir, verkefnastjórar í Höllinni tóku við verðlaununum.
- Eygló Rúnarsdóttir, verkefnistjóri á frístundahluta fagskrifstofu SFS fyrir starf sitt með Reykjavíkurráði ungmenna. Oddný Sturludóttir, formaður skóla- og frístundasviðs og Eva Einarsdóttir, formaður dómnefndar afhentu verðlaunin á starfsdegi fagskrifstofu SFS 28. september. Í verðlaun hlaut Eygló myndina Ævintýraganga eftir listakonuna Iréne Jensen.
Markmið hvatningarverðlaunanna er að vekja athygli á því gróskumikla frístundastarfi sem fer fram í borginni. Þau eiga að vera starfsfólki í frístundastarfi hvatning og stuðla að nýbreytni og þróunarstarfi. Verðlaunin eru rós í hnappagat frístundstarfsins, viðurkenning á vel unnu verki í þágu barna og foreldra og staðfesting á því að starfið sé öðrum fyrirmynd.
Þetta er í annað skipti sem Reykjavíkurborg veitir hvatningarverðlaun fyrir frístundastarf, en í september 2010 voru veitt þrenn hvatningarverðlaun fyrir starfsemi frístundaheimila. Árið 2012 var ákveðið að tilnefna mætti allt frístundastarf á vegum skóla- og frístundasviðs (frístundaheimili, frístundaklúbba, félagsmiðstöðvar og annað frístundastarf) og einnig frístundastarf sem starfrækt er af skólum, þ.m.t. sjálfstætt starfandi skólum í Reykjavík.
Auk verðlaunaverkefnanna voru eftirfarandi verkefni tilnefnd: Kirkjustarf, gott skipulag og fjölbreytni í frístundaheimilinu Álfheimum, eitthvað fyrir alla á frístundaheimilinu Bakkaseli, tónlist í Bakkaseli, félagsmiðstöðin 105, lýðræðis- og mannréttindavinna í Frostaskjóli, safnfrístundaheimilið Frostheimar, enskukennsla í Halastjörnunni, ungmennahúsið Íbúðin, íþróttakennsla í Selinu við Melaskóla, stefnumótun og skipulag í frístundaheimilinu Selinu, frístundaheimilið Kastali, uppbygging félagsmiðstöðvarinnar Laugó, Leikstræti Kamps, félagsmiðstöðin Nagyn, Hjólaskólinn, ungmennaráð innflytjenda, að skapa skapandi starf í Skýjaborgum, teikniklúbburinn Tim Boomerang í félagsmiðstöðinni Tíunni og Frístundaheimilið Tígrisbær.
Í dómnefnd voru fjórir fulltrúar tilnefndir af skóla- og frístundaráði, þau Eva Einarsdóttir (formaður nefndarinnar) Áslaug Sigurbjörnsdóttir, Drífa Baldursdóttir og Hilmar Sigurðsson, einn fulltrúi Félags fagfólks í frítímaþjónustu sem var Hulda Valdís Valdimarsdóttir, einn fulltrúi frá SAMFOK sem var Sigrún Theodórsdóttir og verkefnisstjóri á frístundahluta fagskrifstofu SFS, Sigrún Sveinbjörnsdóttir.