Hús og lóðir til fyrirmyndar í Reykjavík

Fegrunarviðurkenningar Reykjavíkurborgar árið 2012 hljóta fimm lóðir og fjögur hús .

Fegrunarviðurkenningar Reykjavíkurborgar árið 2012 voru veittar við hátíðlega athöfn í Höfða í dag.  Veittar voru viðurkenninar fyrir endurbætur á eldri húsum og fallegar stofnana-, fyrirtækja- og fjölbýlishúsalóðir.  Að þessu sinni hljóta fimm lóðir og fjögur hús viðurkenningu.

Fallegar og vel hirtar lóðir eru til ánægju og yndisauka í borginni og með því að vekja athygli á þeim er hvatt til að forráðamenn fyrirtækja og stofnana fylgi fordæminu og leggi sitt af mörkum til fegrunar borgarinnar. Viðurkenning fyrir lóðir:

Norræna húsið, Icelandair Marina Hótel, EFLA Höfðabakka 9, Suðurhlíðar 38 a-d, Rauðavað 13 - 19 og 21 - 25.

Elsta húsið er reist árið 1883 en það yngsta árið 1955 og spanna þau því nokkuð breitt tímabil í byggingarsögu borgarinnar. Húsin hafa nýlega verið endurnýjuð og eru hvert um sig mjög góður vitnisburður um byggingarlag síns tíma. Þau hafa því mikið varðveislugildi sem hluti af menningar- og byggingarlistasögu Reykjavíkur. Húsin sem hér hljóta viðurkenningar sýna ótvírætt fram  á það að þegar húsum er vel við haldið og þau gerð upp á faglegan hátt eru þau lyftistöng fyrir umhverfi sitt. Með því öðlast þau þann sess sem þeim ber í borgarmyndinni og  eru um leið hvatning til annarra að leggja sitt af mörkunum til varðveislu byggingararfs borgarinnar.

Húseigendur fengur fallegan skjöld til þess að hengja utan á húsin til vitnisburðar um viðurkenninguna. Húsin sem hlutu viðurkenningur eru:

Hagamelur 38-40, Skólavörðustígur 13, Tjarnargata 34 og Þingholtsstræti 12. 



Skipulagsráð Reykjavíkur veitir viðurkenningarnar eftir tilnefningar frá vinnuhópum sem í sátu:

Vegna viðurkenningar fyrir lóðir fjölbýlishúsa og fyrirtækja/stofnana

Björn Ingi Edvardsson, landslagsarkitekt og Valný Aðalsteinsdóttir verkefnisstjóri á Skipulags- og byggingarsviði.

Vegna viðurkenningar vegna endurbóta á eldri húsum

Helga Maureen Gylfadóttir, safnvörður, Minjasafni Reykjavíkur og

Margrét Þormar, arkitekt hjá skipulagsstjóra.

Meðfylgandi eru nánari upplýsingar og rökstuðningur dómnefndar.

Fegrunarviðurkenningar 2012 lóðir (PDF 31KB).

Fegrunarviðurkenningar 2012 hús (PDF 317KB).