Hugviljinn
Út er kominn Hugviljinn, tímarit sem íbúar og starfsfólk endurhæfingar- og búsetukjarna Reykjavíkurborgar fyrir geðfatlaða hafa unnið.Tímaritið er vettvangur og málgagn fyrir geðfatlaða sem nýta sér þjónustu borgarinnar. Þar geta þeir látið raddir sínar heyrast á sínum eigin forsendum, um leið og útgáfan er virkniverkefni innan búsetu- og stuðningsþjónustunnar sem miðar að því að efla áhuga og þátttöku í umræðum um málefni geðfatlaðs fólks. Framtíðaráform og metnaður þeirra sem að blaðinu standa er að það útgáfan muni með tíð og tíma alfarið vera í höndum geðfatlaðra.
Netútgáfa af Hugviljanum.