ATH: Þessi frétt er eldri en tveggja ára gömul.
Hugarafl færði borgarstjóra og borgarfulltrúum jólagjöf
Fulltrúar samtakanna Hugarafls færðu borgarstjóra og borgarfulltrúum jólagjöf á dögunum.
Gjöfin er tvíþætt annars vegar bókin geðveikar batasögur 2 þar sem notendur samtakanna Hugarafls segja frá batasögum sínum hins vegar heimildarmyndina Hallgrímur, maður eins og ég þar sem Hallgrímur Björgvinsson segir frá baráttu sinni við geðsjúkdóm og viðbrögðum samfélagsins við veikindum hans.
Með gjöfinni vilja samtökin benda á hið góða og mikla starf sem Hugarafl innir af hendi í þágu einstaklinga með geðraskanir.