Hringþing um menntun innflytjenda á vefnum
14. september síðastliðinn var haldið vel heppnað Hringþing um menntamál innflytjenda. Helsta markmið þingsins var að skapa samræðuvettvang þeirra fjölmörgu sem koma að menntamálum innflytjenda á öllum skólastigum og í fullorðinsfræðslu. Leitað var álits þinggesta á forgangsröðun verkefna við þróun þessara mála og rætt hver skuli vera helstu forgagnsverkefni á sviði menntamála innflytjenda í framkvæmdaáætlun, sem mótuð verður á næstu misserum.
Á Hringþingi voru kynnt fjölmörg áhugaverð og hagnýt verkefni sem tengjast menntamálum innflytjenda og athyglisverðar hringborðsumræður voru um orðræðuna í samfélaginu gagnvart innflytjendum sem og um kennaramenntun.
Sjá upptökur frá Hringþingi.
Veftímarit mennta- og menningamálaráðuneytisins.