Hrekkjavaka fyrir alla fjölskylduna í Breiðholti
Frístundamiðstöðin Miðberg stendur fyrir hrekkjavökuskemmtun fyrir alla fjölskylduna í Breiðholti milli kl 14:00 – 16:00 í dag. Boðið verður um fjölbreytta skemmtun, s.s. andlitsmálningu, draugahús og draugasögur.
Skemmtunin mun fara fram á þremur stöðum.
Í Miðbergi (Gerðubergi 1) verður draugahús, þar sem hægt verður að upplifa hrekkjavökustemningu, þreifa á heila og fara í gegnum draugaþrautabraut.
Í speglasalnum í Gerðubergi verður boðið upp á upplestur á draugasögum og draugastund verður haldin í innilauginni í Breiðholtslaug þar sem komið verður fyrir graskerum, köngulóm og fl. þannig að þar verði hægt að fara í alvöru hrekkjavökusund.
Einnig verður nornakaffihús í húsnæði Miðbergs þar sem hægt verður að kaupa grænar og rauðar nornavöfflur, kakó og nornaseiði.
Starfsmenn frístundaheimilanna ætla því að bjóða upp á frábæra skemmtun fyrir alla fjölskylduna í Breiðholti og vonast til að sjá sem flesta.