Hrásalat innkallað af markaði vegna ómerkts ofnæmis- og óþolsvalds
Fréttatilkynning frá matvælaeftirliti Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur
Efni: Innköllun af markaði vegna ómerkts ofnæmis- og óþolsvalds (mjólkurafurð).
Hollt og Gott ehf. hefur, í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, ákveðið að innkalla Hrásalat í 350 g pakkningum þar sem það inniheldur ómerktan ofnæmis- og óþolsvald (mjólkurafurð).
Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:
Vörumerki: Hollt og Gott ehf
Vöruheiti: Hrásalat
Framleiðandi: Hollt og Gott ehf., Fosshálsi 1, 110 Reykjavík.
Nettóþyngd: 350 g.
Umbúðir: Plastöskjur.
Strikanúmer: 5690350033206
Dreifing: N1, Olís, 10-11, Hagkaup, Vöruval, Kassinn, Verslun Einars Ólafs
Kassinn Ólafsvík, Brekkan, Stöðvarfirði, Rangá, Miðbúðin, Melabúðin, Nesval.
Mjólk og afurðir úr henni eru á lista yfir ofnæmis- og óþolsvalda. Samkvæmt matvælalöggjöfinni eiga ofnæmis- og óþolsvaldar að vera skýrt merktir í merkingum matvæla.
Tekið skal fram að varan er skaðlaus fyrir þá sem ekki eru viðkvæmir fyrir mjólk og afurðum úr henni. Þeir neytendur sem eiga umrædda vöru og eru viðkvæmir fyrir mjólk og afurðum úr henni eru beðnir um að farga henni eða skila í þá verslun sem hún var keypt í.