Hönnunarsamkeppni um hjólastæði og hjólaskýli
Skilafrestur í samkeppni um hönnun hjólastæða, hjólaskýla og annarra hjólagagna rennur út á mánudag. Reykjavíkurborg og Hönnunarmiðstöð Íslands standa að samkeppninni í samstarfi við Arkitektafélag Íslands. Lýst er eftir grundvallarhugmyndum að hentugum hjólastæðum, hjólaskýlum og öðrum munum eða mannvirkjum sem auðveldað geta hjólreiðafólki að nýta reiðhjól sem samgöngumáta í borginni. Um ólíkar útfærslur getur verið að ræða í miðborg og utan miðborgar.
Veitt verða 1. verðlaun eigi lægri en kr. 1.000.000.- og auk þess er dómnefnd heimilt að kaupa tillögur fyrir allt að kr. 500.000.- úr öllum innsendum tillögum.
Nánari upplýsingar er að finna á www.reykjavik.is/samkeppni.