Hlíðaskóli og Breiðholtsskóli halda áfram í úrslitakeppni Skrekks

Öllum undanúrslitakvöldum Skrekks er nú lokið og voru það Hlíðaskóli og Breiðholtsskóli sem að tryggðu sér í kvöld pláss í úrslitum.

Íslensk æska er ekki af baki dottin, frábært hugmyndaflug og framúrskarandi ungmenni hafa einkennt Skrekkinn í ár og getum við lofað góðri skemmtun á úrslitakvöldinu sem verður í beinni útsendingu í opinni dagskrá á Popp-TV mánudaginn 26. nóvember klukkan 20.00.

Tvö önnur lið en þau sem unnu til úrslita fá að keppa á úrslitakvöldinu og voru þau valin af dómnefnd. Alls munu því átta lið keppa um Skrekkinn í Borgarleikhúsinu mánudagskvöldið 26. nóvember. Þau eru úr Kelduskóls, Háteigsskóla, Ingunnarskóla, Ölduselsskóla, Hlíðaskóla, Breiðholtsskóla, Fellaskóla og Austurbæjarskóla.  

Myndirnar af Skrekk hefur Helga Björnsdóttir tekið. Fleiri myndir eru á fésbókarsíðu Skrekks.