Hjólum til framtíðar

Ráðstefnan Hjólum til framtíðar 2012 - rannsóknir og reynsla verður haldin í Iðnó eftir viku, föstudaginn 21. september kl. 9 - 16.  Til landsins koma virtir vísindamenn frá Bretlandi og Finnlandi með áhugaverða fyrirlestra. Einnig verða kynntar niðurstöður innlendra rannsókna sem og dregin fram reynsla einstaklinga, fyrirtækja og sveitarfélaga í að efla hjólreiðar.     



Eitt lykilerinda ráðstefnunnar er um rannsókn á  hjólreiðum á norðurslóð, en hún sýnir að öflugasti hópur hjólreiðamanna í finnsku borginni Oulu er á aldrinum 15 – 25 ára og um 30% þeirra hjóla allt árið um kring í allt að -30°frosti. Á  Íslandi hefur þessi hópur verið lítt sýnilegur.



Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra, Jón Gnarr borgarstjóri og Dr. Ari Kristinn Jónsson rektor HR munu ávarpa ráðstefnuna. Þorsteinn Hermannsson samgönguverkfræðingur er fundarstjóri.  



Hjólafærni á Íslandi og Landssamtök hjólreiðamanna standa fyrir ráðstefnunni í góðri samvinnu við Reykjavíkurborg, Vegagerðina, Landlæknisembættið, Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík, Ferðamálastofu og fleiri góða aðila. Ráðstefnan er hluti af dagskrá Evrópsku samgönguvikunnar.



Nánari upplýsingar um dagskrá er að finna á vef Hjólafærni og lýkur skráningu á miðnætti 19. sept. Aðgangur að ráðstefnunni er 4.500 kr. og 2.000 kr. fyrir námsmenn. Einnig verður hægt að fylgjast með ráðstefnunni á netinu.

Sjá vef Hjólafærni á Íslandi – fræðasetur um hjólreiðar.