Laugardaginn 28. apríl verður Hjóladagur í Vesturbænum þar sem hjól og hjólreiðafólk af öllum stærðum og gerðum verða í forgrunni. Skrúðhjólatúr, hjólakeppni, flóamarkaður, skiptihjólamarkaður og fleira.
Dagskrá:
Kl. 10.00 - 12.00 - Viðgerðatorg
Fáðu aðstoð og góð ráð við að koma hjólinu í stand.
Kl. 10.00 - 12.00 - Skiptihjólamarkaður
Tilvalið tækifæri til að hreinsa úr görðum, skúrum og geymslum. Skipta út götuhjóli fyrir fjallahjól, fá stærri hjól fyrir stækkandi börn eða lítil hjól fyrir nýja hjólreiðamenn.
Kl. 11.00 - Skrúðhjólatúr
Lagt af stað frá Hagaskóla. Hjólað eftir Ægisíðu, upp Dunhaga að Hagaskóla.Hjól af öllum stærðum og gerðum. Tónlist og fjör, klemmum spil á teinana og tökum undir!
Kl. 12.00 - Tour de Vesturbær
Hjólreiðakeppni sem hefst kl. 12:00 hjá Hagaskóla.
Skráning á staðnum.
Kl. 13.00 - Þrautabraut
Þrautabraut fyrir yngri krakkana.
Lögreglumaður kemur og athugar ástand hjóla.
Flóamarkaður og veitingar
Starfsfólk Hagaskóla stendur fyrir flóamarkaði og veitingasölu. Á markaðnum verður fjölbreyttur varningur til sölu .