Hjólaævintýri fjölskyldunnar á sunnudag
Hjólaævintýri fjölskyldunnar á sunnudag
Sunnudaginn 16. september verður boðið upp á hjólreiðaferðir með leiðsögn undir yfirskriftinni „Hjólaævintýri fjölskyldunnar“. Hjólað verður frá þremur upphafsstöðum á höfuðborgarsvæðinu á milli vatnavinja þar sem áhugasamir fræðimenn segja frá náttúrufyrirbærum á svæðinu. Hjólaævintýrin hefjast kl. 10.30 og þeim lýkur í Árbæjarsafninu kl. 14.00 en þar tekur við hátíðardagskrá umhverfisráðuneytisins í tilefni Dags íslenskar náttúru. Hjólaævintýrið markar einnig upphaf Evrópsku samgönguvikunnar sem Reykjavíkurborg stendur að.
Upphafsstaðirnir hjólaleiðanna eru við Bakkatjörn á Seltjarnarnesi, Ástjörn í Hafnarfirði og í Álafosskvosinni Mosfellsbæ. Hjólaævintýrin henta allri fjölskyldunni og eru þátttakendur hvattir til að hafa með eigið nesti en jafnframt vakin athygli á íslenskum pönnukökum í Árbæjarsafninu.
Að dagskránni standa Náttúruskóli Reykjavíkur, Landssamtök hjólreiðamanna, Landvernd, Hjólafærni á Íslandi, Fuglavernd og Framtíðarlandið. Fulltrúar hjólreiðafélaganna munu leiða hjólalestirnar.
Leiðarlýsingu og kort hjólaleiðanna er að finna á vef Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/samgonguvika.