ATH: Þessi frétt er eldri en tveggja ára gömul.
Hjóla- og gönguleið yfir Langholtsveg
Vinna við endurgerð á hjóla- og gönguleið á hraðahindrun yfir Langholtsveg hefst í dag og verður umferð beint um hjáleiðir á meðan framkvæmdir standa yfir. Áætlað er að verkinu verði lokið eftir viku eða 10. október.
Breytingarnar eru hluti af lagningu hjóla- og göngustígs frá Hlemmi að Elliðarárósum, en á þeirri leið verður umferð gangandi og hjólandi aðskilin, auk þess sem leiðir yfir umferðargötur verða gerðar öruggari.
Sjá nánar í eldri frétt >> Stórhugur í gerð göngu- og hjólastíga.