Hjálpræðisherinn opnar verslun og samkomusal í Mjódd

Borgarstjóri sagði að sín fyrstu kynni af Hjálpræðishernum hefðu verið þegar hann las Ofvitann eftir Þórberg Þórðarson. Þórbergur hefði haft miklar áhyggjur af Oddi vini sínum sem hann hélt að hefði gengið á vit trúarofsa. Því sagði Þórbergur Oddi ýmsar lognar sögur af starfi Hjálpræðishersins. Meðal annars að þar væri dansaður svokallaður Engladans á samkomum en á þeim dansaði fólk alls nakið. Þetta vakti mikla gleði á samkomunni. Boðið var upp á rjómavöfflur og tónlist á opnunarhátíðinni.

Hjálpræðisherinn er að færa út kvíarnar í Reykjavík með opnun setursins en mun halda starfsemi sinni óbreyttri í Kirkjustræti og Garðastræti.  Með setrinu í Mjódd getur Hjálpræðisherinn þjónað skjólstæðingum sínum betur í  fjölmennum hverfum á höfuðborgarsvæðinu eins og Árbæ, Breiðholti og Kópavogi.

Borgarstjóri sagðist vera mikill aðdáandi verslana Hjálpræðishersins og hann hefði verið dyggur viðskiptavinur í gegnum tíðina. Flest fötin sem hann hefði leikið í um dagana hefðu t.d. verið keypt í verslun Hersins í Garðastræti.  Í verslunum Hjálpræðishersins væri hægt að fá fín föt á góðu verði en þar væri líka hægt að fá ótrúlega ljót föt sem gaman væri að klæðast við sérstök tilefni. Borgarstjóri sagði síðan sögu af því að hann hefði lent í þriðja sæti í „ljótupeysukeppni“ sem haldin hefði verið meðal starfsfólks Ráðhúss Reykjavíkur en hann hefði að sjálfsögðu keypt peysuna hjá Hjálpræðishernum. Borgarstjóri notaði tækifærið og festi kaup á peysu sem hann hyggst klæðast ef slík keppni verður haldin aftur og er nokkuð öruggur með sigur.