Heilsurækt við Breiðholtslaug

Reykjavíkurborg leitar að samstarfsaðilum um uppbyggingu heilsuræktar á svæði Breiðholtslaugar við Austurberg. Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun tillögu þess efnis til að bæta úr þörf fyrir líkamsræktarstöð í Efra-Breiðholti.

Slík uppbygging í tengslum við Breiðholtslaug hefur áður verið auglýst í kjallararými við Breiðholtslaug í svonefndum Undirheimum en án niðurstöðu. Nú þegar auglýst verður á ný eftir samstarfsaðilum verður opnað á aðra valkosti í staðsetningu sem kunna að vera til uppbyggingar á lóð eða í grennd laugarinnar.

Borgarráð fól Framkvæmda- og eignasviði að hafa forystu um málið í samvinnu við Skipulags- og byggingarsvið og ÍTR.