ATH: Þessi frétt er eldri en tveggja ára gömul.
Heiðmörk, nýtt deiliskipulag
Heiðmörk, nýtt deiliskipulag
Á fundi skipulagsráðs þann 7. nóvember 2012, var lögð fram að lokinni auglýsingu tillaga Landmótunar að deiliskipulagi fyrir Heiðmörk ásamt greinargerð og umhverfisskýrslu, dags. 6. júlí 2012. Einnig voru lagðar fram athugasemdir og bréf sem bárust á auglýsingatíma skipulagsins. Erindi var tekið til afgreiðslu en því síðan frestað. Ef málið verður tekið upp að nýju mun það verða endurauglýst skv. 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Umhverfis-og skipulagssvið
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur