Haustgróðurseting í Fífuborg

Börnin í Fífuborg í Grafarvogi hafa undanfarna daga gróðursett trjáplöntur í Hallsholti, nýfengnu grenndarsvæði leikskólans. Börnin hafa haft afar gaman af þessu verkefni og notið útiverunnar.

Ætlunin er að útbúa rjóður til útikennslu og hafa börnin gróðursett birki, elri, sólberjarunna og rifsberjarunna. Það er gaman að rækta og búa til skjól fyrir framtíðarbörn í Fífuborg.