Haustfundur lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins

Haustfundur lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins

Árlegur haustfundur Lögreglunnar á Höfðuðborgarsvæðinu með íbúum  Árbæjar, Grafarholts og Úlfarsárdals  verður haldinn í félagsmiðstöðinni Hraunbæ 105, þriðjudaginn 13. nóvember. Á fundinum mun Stefán Eiríksson lögreglustjóri, ásamt fríðu föruneyti, kynna stöðu helstu löggæslumála í hverfunum.

Fundurinn er árviss viðburður og jafnan vel sóttur af starfsmönnum skóla og frístundasviðs, félagasamtökum, foreldrafélögum, íbúasamtökum og öðrum áhugasömum hverfisbúum.

Fundurinn hefst kl 16.15. Gera má ráð fyrir klukkustundar löngum fundi.

Hverfisbúar eru hvattir til að mæta, fræðast um stöðu löggæslumála í hverfunum og ræða við Stefán sem og aðra starfsmenn Lögreglunnar.