Harpa flottust nýrra bygginga
Stærsta ferðatímarit Svíþjóðar Allt om Resor fjallar um glæsilegar nýjar byggingar í nýjasta tölublaðinu. Blaðamaðurinn og tískulöggan Stefan Nilsson setur tónlistar- og ráðstefnuhúsið Hörpu í fyrsta sætið og birtist heilsíðumynd af byggingunni í blaðinu.
Harpa glitrar eins og diskókúla er fyrirsögn greinarinnar en í henni segir m.a. að hinn frumlegi dansk-íslenski listamaður Ólafur Elíasson hafi hannað glerhjúp Hörpu sem minni á íslenska náttúru. Nilson klykkir síðan út með því að það sé alls ekki verra að tónlistarhúsið glitri eins og diskókúla. Í öðru sæti er Nýja safnið í New York sem var árið 2008 sagt vera eitt af nýjum sjö undrum veraldar.