Hangið á Hlemmi með Agent Fresco á laugardaginn

Alla laugardaga fram að jólum verða tónleikar á Hlemmi í boði jólaborgarinnar Reykjavík. Síðasta laugardag var það hljómsveitin Tilbury sem reið á vaðið en á laugardaginn kemur er það Agent Fresco sem ætlar að spila fyrir strætófarþega, gesti og gangandi kl. 15.00 og frameftir.

Tónleikarnir eru fyrir alla aldurshópa og er tilvalið að enda eða byrja miðborgarjólaröltið á Hlemmi undir góðum tónum Agent Fresco.

 

Hlemmur hefur svo sannarlega verið klæddur í jólabúning en innblástur skreytinganna er jólamyndin Christmas vacation og hugtakið “magn umfram gæði”. Á Hlemmi er ekkert sem heitir of mikið jólaskraut. Sýningargluggi hefur sömuleiðis verið skreyttur þar sem hægt er að gægjast aftur í fortíðina. Þar halda tvær ungar framakonur upp á jólin saman, sötra soda stream og opna pakka. Augnablikið var fryst þegar önnur þeirra var í þann mund að opna jólagjöf áratugarins – Clarens fótanuddtæki.

 

Njótum aðventunnar, góðrar tónlistar og skemmtilegra jólaskreytinga á Hlemmi.

Dagskráin framundan:

8. desember kl 15:00 - Agent Fresco

15. desember kl 15:00 - Retró Stefsson

22. desember kl 15:00 - Jónas Sig og Ómar Guðjóns