Hagsmunaaðilakynningar - Brynjureitur og Hljómalindarreitur

Tvær kynningar fyrir hagsmunaaðila - vegna breytingar á deiliskipulagi verða haldnar nk. miðvikudag, 19. september. Kynningarnar verða haldnar á Hverfisgötu 33, 1.hæð. Sú fyrri er fyrir Brynjureit eða staðgreinireit 1.172.0 - sem afmarkast af Laugavegi, Vatnsstíg, Hverfisgötu og Klapparstíg og er milli kl. 16 - 17. Seinni kynningin er fyrir Hljómalindareit eða staðgreinireit 1.171.1 - sem afmarkast af Laugavegi, Klapparstíg, Hverfisgötu og Smiðjustíg. Sú kynning hefst kl. 17.15 og er til 18.15.

Kynningarnar / fundirnir eru öllum opnir og vonast er til að sem flestir mæti sem láti sig málið varða.

Veittur verður frestur til að skila inn ábendingum og athugasemdum til 4 október nk. og skulu þær sendast á netfangið skipulag@reykjavik.is. Athugasemdum/ ábendingum verður ekki svarað skriflega heldur eru þær innlegg í áframhaldandi vinnu.

Sjá tillögur hér fyrir neðan:

Brynjureitur, deiliskipulag (PDF).   

Brynjureitur, skýringaruppdráttur (PDF).  

Hljómalindareitur, deiliskipulag (PDF).  

Hljómalindareitur, skýringaruppdráttur (PDF).