Hafnarstígurinn – fjölbreytt gönguleið

Skemmtileg gönguleið þar sem hægt er að upplifa fjölbreytta hafntengda starfsemi, verslanir, veitingastaði og ferðaþjónustu hefur nú verið merkt frá Hörpu að Grandagarði. Tilgangurinn er að vekja athygli gesta hafnarinnar á þessum möguleika og gera gönguleiðina aðgengilegri. Rekstraraðilar við höfnina hafa kallað leiðina Hafnarstíginn.

Gönguleiðin sem er um kílómetri að lengd var máluð með vél sem yfirleitt er notuð til að merkja bílastæði og vegi.  Hildur Gunnlaugsdóttir verkefnisstjóri sagði notuð hefðu verið sömu litarefni og eru í vegmerkingum, en blönduð með nýjum hætti. ,,Þetta er því skapandi og öðruvísi notkun á tæki og efnum sem yfirleitt þykja ekki spennandi“, sagði Hildur. ,,Rendurnar eiga að tákna reipi sem hnýta saman höfnina“.

Á tveimur stöðum hafa verið málaðir myndskreyttir sexhyrningarnir sem mynda torg sem hægt væri að nýta fyrir viðburði, eða staði til þess að mæla sér mót á. Torgin tvö eru annars vegar merkt með akkeri og áttavitarós og hins vegar með bátsstýri og hvölum. Hildur segir að innblástur að mynstrunum sé sóttur í sögu hafnarinnar og notkun hennar í dag. 

Þar sem stígurinn endar við Sjóminjasafnið er hægt að halda för sinni áfram í gegnum anddyrið og þá blasa verbúðirnar við Grandagarð við, þar sem spennandi gallerí og verslanir er að finna.  

Hildur segir að ýmsir möguleikar tengist Hafnarstígnum og innan tíðar verði hafist handa við spennandi útiæfingasvæði við höfnina á svæðinu milli Sjóminjasafnsins og gamla slippsins. Svæðið verður hannað af hönnunarteyminu Stáss design og framkvæmt í samstarfi við Mjölni.

Hönnuðir Hafnarstígsins eru Massimo Santanicchi og Ragnar Már Nikulásson. sem hönnuðu einnig fánana sem lífga upp á svæðið við Austurbakka við Hörpu. Mattia Gambardella var ráðgjafi. Hafnarstígurinn er samstarfsverkefni Faxaflóahafna og Reykjavíkurborgar. Tekið var mið af eldri gönguleiðum sem Faxaflóahafnir höfðu áður merkt.

Samskiptasíða verkefnisins er www.facebook.com/hafnarstigurinn.