Grænfáni blaktir nú í Blásölum

Börnin í leikskólanum Blásölum uppskáru erfiði tveggja ára umhverfisstarfs í dag þegar þau drógu Grænfána að húni í norðanbálinu. Hátíð var í leikskólanum í allan dag og kom m.a. Dúó Stemma í heimsókn, en það eru hljóðfæraleikarar úr sinfóníuhljómsveit Íslands. Tvíeikið lék á potta, pönnur, skeljar og bein og tengdu þannig tónlist við umhverfisstarfið og útinámið í leikskólanum.



Foreldrar hafa verið virkir í undirbúningi þess að leikskólinn fengi Grænfánann og fögnuðu þeir með börnunum í dag. Þegar grænfáninn hafði verið dreginn að húni var boðið upp á kakó og kökur og nutu börn og foreldra samvista innan dyra meðan norðanbálið gnauðaði úti.



Leikskólinn Blásalir hefur gert útinám og umhverfisstarf að merkifána, en tekur einnig þátt í samstarfs- og þróunarverkefni um stærðfræði og vísindi í  ásamt leikskólum í Svíþjóð, Eistlandi og Litháen.