Göngum, hjólum eða tökum strætó á völlinn
Í kvöld, kl. 18.30, mætir íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu liði Úkraínu á Laugardalsvelli. Mikil stemmning er fyrir leiknum en með sigri getur íslenska liðið tryggt sér sæti í lokakeppni Evrópumeistaramótsins. Er gert ráð fyrir að aðsókn á leikinn verði mjög góð og hvetur Reykjavíkurborg fólk til að flykkjast á völlinn. Mikil aðsókn á leikinn getur hins vegar valdið umferðartöfum og vandræðum í sambandi við að finna bílastæði. Reykjavíkurborg hvetur því alla sem vettlingi geta valdið til að ganga, hjóla eða taka strætó á völlinn til að draga úr mengun í borginni og minnka álag á umferðarmannvirki. Að öðru leyti tekur Reykjavíkurborg undir með KSÍ og Lögreglunni í Reykjavík sem hefur sent út skilaboð til fólks um að leggja bílum sínum löglega við völlinn. ÁFRAM ÍSLAND – styðjum stelpurnar okkar.