ATH: Þessi frétt er eldri en tveggja ára gömul.
Góðan daginn dagurinn haldinn hátíðlegur mánudaginn 3. september.
Góðan daginn kæru Íslendingar
Mánudaginn 3. september höldum við í þriðja sinn upp á „Góðan daginn“ daginn. Á þessum skemmtilega degi viljum við vera sérlega alúðleg við alla sem við hittum og byrjum náttúrulega á þeirri sjálfsögðu íslensku kurteisi að bjóða góðan daginn. Munum eftir því að mánudagurinn og reyndar allir aðrir dagar verða svo miklu skemmtilegri ef við bjóðum öllum góðan daginn. Tökum þátt í þessu einstaklega vinalega átaki saman og bjóðum hvert öðru góðan daginn á góðan daginn daginn.