ATH: Þessi frétt er eldri en tveggja ára gömul.
Góð mæting á málstofu um samvinnu íþróttafélaga
Íþróttabandalag Reykjavíkur og íþrótta- og tómstundasvið stóðu fyrir málstofu í morgun um samstarf og samvinnu félaga og nýtingu mannvirkja sem gæti leitt af sér betri rekstrareiningar og sameiningu félaga.
Frummælendur voru Eva Einarsdóttir formaður íþrótta- og tómstundaráðs og Jón Karl Ólafsson formaður Fjölnis.
Mjög góð mæting var á málstofuna, um 60 manns, og góðar umræður áttu sér stað.