Glærukynning úttektarnefndar Orkuveitu Reykjavíkur

Skýrsla úttektarnefndar Orkuveitu Reykjavíkur var kynnt fyrir eigendum, sveitastjórnarmönnum og aðalstjórn Orkuveitu Reykjavíkur síðdegis í gær. Í framhaldinu var haldinn blaðamannafundur þar sem fjölmiðlar fengu kynningu á skýrslunni auk þess sem nefndarfólk sat fyrir svörum. Hér er hægt að sjá glærukynninguna sem úttektarnefndin notaðist við á fundunum í gær en hún gefur ágæta mynd af inntaki skýrslunnar. Skýrsluna í heild sinni er að finna hér á vefnum undir fyrirsögninni áhugavert.

 

Í úttektarnefndinni sitja Margrét Pétursdóttir endurskoðandi, Ása Ólafsdóttir hæstaréttarlögmaður og Ómar Kristmundsson stjórnsýslufræðingur. Nefndin hefur verið að störfum frá 23. júní 2011.

Glærukynning úttektarnefndar Orkuveitu Reykjavíkur.