Gefum hlutum framhaldslíf – taktu þátt í samkeppni Nýtnivikunnar

Nýtnivikan verður haldin hér á landi í fyrsta sinn vikuna 17. - 25. nóvember en markmið vikunnar er að draga úr myndun úrgangs og hvetja fólk til að nýta hluti betur. Vikan er samevrópsk og er ætlað að vekja fólk til vitundar um nauðsyn þess að lengja líftíma hlutanna og gefa þeim nýtt hlutverk. 

Allir eru hvattir til að virkja sköpunargáfuna í skemmtilegri samkeppni. Sendu inn mynd og texta af hlut sem er vel nýttur, endurunnin, endurnýttur eða endurskapaður. Verðlaun verða í formi inneignar hjá Góða hirðinum og Rauða kross búðinni, sölubás í Kolaportinu og hagnýt verðlaun fyrir þann sem fær flest „like“ á fésbókarsíðu Reykjavíkurborgar. Dómnefnd mun m.a. velja þrjá hluti sem fengið hafa framhaldslíf, út frá frumleika, sögu og endingu.

Sendu okkur mynd af hlutnum, stutta lýsingu, sitthvað um hlutverk hans, uppruna og erindi í samkeppnina.

Hægt er að senda inn mynd á þrjá vegu:

  1. Þú getur tekið myndina á símann þinn með Instagram og þarft aðeins að merkja hana #nytnivikan. Mundu að láta lýsinguna fylgja með sem myndatexta  þ.e. „Type your caption here“.
  2. Þú getur sett myndina á fésbókarvegg Reykjavíkurborgar: https://www.facebook.com/Reykjavikurborg. Athugaðu bara að láta lýsinguna fylgja með sem myndatexta og að myndin sé merkt #nytnivikan.
  3. Þú getur sent okkur myndina ásamt lýsingu í tölvupósti á netfangið nytnivikan@gmail.com.

Öllum myndum sem berast í samkeppnina verður safnað saman í eitt myndaalbúm á fésbókarvegg Reykjavíkurborgar. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að hafa allar myndir sem berast í samkeppnina í í sömu stærð og formi. Muna að setja nafn og netfang sendanda.