Gaman saman í 2 ár - móðurmál og barnamenning í Garðaborg
Mikill fagnaður var hjá pólskum fjölskyldum í leikskólanum Garðaborg á dögunum þegar haldið var upp á tveggja ára afmæli verkefnisins Gaman saman. Ævinlega er mikið fjör á þessum fjölskyldumótum sem haldin eru einu sinni í mánuði, á laugardegi, undir pólska heitinu Razem Ra?niej.
Kristín Einarsdóttir leikskólastjóri í Garðaborg og Katarzyna Anna Chadzynska starfsmaður í leikskólanum Álftaborg hafa í samstarfi við Fríðu B. Jónsdóttur verkefnastjóra fjölmenningar hjá SFS og Kristínu R. Vilhjálmsdóttur verkefnastjóra fjölmenningar hjá Borgarbókasafni haft veg og vanda að þessu verkefni. Það hefur skapað tækifæri fyrir pólskumælandi börn og fjölskyldur þeirra til að hittast, rækta móðurmálið hlæja og leika sér saman.
Gaman Saman er auk þess vettvangur þar sem kynnt er sú fjölbreytta starfsemi sem er í boði hjá Reykjavíkurborg fyrir borgarbúa með annað móðurmál en íslensku. Á Gaman saman móti sem haldið var 6. október mættu verkefnastjórar fjölmenningar ásamt Joönnu Marcinkowska þjónustufulltrúa hjá Reykjavíkurborg til að spjalla við þá tæplega 90 Reykvíkinga af pólskum uppruna sem öllu jöfnu taka þátt í verkefninu. Þeir fengu kynningu á mörgu í þjónustu borgarinnar sem auðveldar þeim aðgengi að upplýsingum og opnar þeim leiðir til aukinnar þátttöku í samfélaginu.
Síðastliðinn vetur var verkefnið Gaman saman styrkt af þróunarsjóði innflytjendaráðs og eru upplýsingar um það verkefni í nýútkominni skýrslu.
Veturinn 2011 - 2012 var fjölskyldusamveran Gaman saman einnig í boði fyrir spænskumælandi fjölskyldur í leikskólanum Nóaborg en hluti þess starfs hefur flust í leikskólann Hagaborg þar sem Félagið Móðurmál sinnir móðurmálskennslu fjölmargra barna sem búsett eru í Reykjavík og á höfuðborgarsvæðinu.