Gakktu í bæinn á Menningarnótt
Á Menningarnótt er gestum boðið að ganga í bæinn. Að ganga í bæinn hjá íbúum miðborgarinnar og þiggja vöfflur og kaffi. Að ganga í bæinn í Hörpu og fara á sinfóníutónleika eða kynnast þeim fjölmörgu hátíðum sem eru í boði í Reykjavík allt árið. Að ganga Rauða dregilinn, nýja gönguleið á gamla hafnarsvæðinu. Að ganga í bæinn hjá Norræna félaginu, sérstökum gestum Menningarnætur.
Dagskrá Menningarnætur í ár er sannkallað veisluborð þar sem þar sem nýjir og gamlir viðburðavinir mæta gestum sínum. Hægt verður að sækja gróna og góða viðburði en einnig upplifa eitthvað sem maður hefur aldrei séð áður. Pönnukökulampar, Aldingarðar, Skýjaborgin, Kadilakkar, Robbabillí, Postulínsvirki, Skáldanótt, Sálmafoss, Dansíókí, Heimspeki hjartans og Vampírfés. Á Menningarnótt fær hugmyndaauðgi og sköpunarkraftur borgarbúa og gesta hennar að njóta sín um alla miðborg.
MENNINGARNÓTT er fyrir alla aldurshópa, unga jafnt sem aldna, enda hefur það sýnt sig að fjölskyldur halda gjarnan hópinn. Mannfjöldinn í miðborginni verður mikill á laugardaginn og er umtalsverður viðbúnaður hafður til þess að allt geti farið vel fram í anda Menningarnætur sem hátíðar allrar fjölskyldunnar. Um 100 þúsund manns hafa sótt Menningarnótt á síðustu árum.
SETNING MENNINGARNÆTUR
Borgarstjórinn í Reykjavík, Jón Gnarr, setur Menningarnótt formlega á útisviði í Hljómskálagarðinum kl. 12.30. Strax að setningu lokinni taka við tónleikar úr Lagaleiðangri til heiðurs okkar ástsæla dægurlagahöfundar Ingibjargar Þorbergs og er aldrei að vita nema Ingibjörg Þorberg taki sjálf þátt. Lagaleiðangurinn heldur svo áfram og munu Magga Stína, Jónas Sig., Sigtryggur Baldursson, Tilbury, Raggi Bjarna og margir fleiri flytja lög hennar um alla borg.
FJÖLSKYLDAN SAMAN Á MENNINGARNÓTT
Á Menningarnótt ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi, ekki síst fjölskyldur og börn. Mikið úrval verður af fjölbreyttum listasmiðjum fyrir börn og fullorðna um allan bæ. Í Norræna húsinu verður auk þess að finna barnatónleikana Fjörkálfur og leiksýninguna Völuspá, danssýningin Skýjaborg verður fyrir þau allra yngstu í Þjóðleikhúsinu, Lýðveldisleikhúsið flytur þrjú Grimms ævintýri í Gamla Bíó, Nonnasögur verða lesnar í Iðnó, Sinfóníuhjómsveit Íslands býður á tónleika með Maximús Músíkús í Hörpu, Bylgjan verður með barnadagskrá á Ingólfstorgi, Felix og Sproti verða í höfuðstöðvum Landsbankans í Austurstræti, Latabæjarhlaupið er á sínum stað í Hljómskálagarðinum og svona mætti lengi telja. Að sjálfsögðu eru líka aðrir viðburðir hátíðarinnar forvitnilegir fyrir börn, hver á sinn hátt!
BORGARBÚAR BJÓÐA Í BÆINN
Vöfflukaffið hefur undanfarin ár fest sig í sessi á Menningarnótt. Íbúar á Baldursgötu, Bjargarstíg, Freyjugötu, Grettisgötu, Grundarstíg, Lokastíg, Njarðargötu, Óðinsgötu og mörgum fleiri stöðum munu taka vel á móti gestum með vöfflum og kaffi og við Ingólfsstræti verður auk þess Garðveisla þar sem boðið er upp á tónlistaratriði, skúlptúra og fleira.
HÁTÍÐABORGIN REYKJAVÍK
Menningarnótt mun í fyrsta sinn marka árlegt upphaf hátíðaársins 2012 - 2013 í Reykjavík. Munu hátíðar eins og Airwaves, Hönnunarmars, Reykjavík Dance Festival, Lókal - alþjóðleg leiklistarhátíð, Kvikmyndahátíðin Riff, HönnunarMars og fleiri kynna gestum starfsemi sína á komandi hátíðarári með lifandi viðburðum í Hörpu. Jazzhátíð í Reykjavík verður svo sett um kvöldið. Hátíðaborgin hefur aðsetur í Hörpu og verður af nógum dansi, tónlist, leiklist, hönnun, mat og bókmenntum að taka.
RAUÐI DREGILLINN
Ýmissa grasa mun kenna á gönguleiðinni við gömlu höfnina, frá Hörpu að Sjóminjasafninu Vík sem veitir vegfarendum innsýn í starfsemi hafnarinnar, innan- og utandyra. Má þar nefna tónleika á Járnbrautinni, bönd og bingó í Netagerðinni, stuttmyndir og tónlist á Hotel Marina, fjölskyldufjör og föndur í Sjóminjasafninu, tónleikar á Bryggjunni, kadilakkar í Hörpu og myndvörpun í varðskipinu Tý.
SKÁTALAND
Í tilefni af hundrað ára afmæli skátahreyfingarinnar á Íslandi býður skátahreyfingin öllum að koma og taka þátt í alvöru skátastarfi í Hljómskálagarðinum. Skátarnar mæta ferskir eftir nýafstaðið landsmót með alvöru skátastemningu; trönubyggingar, grillað brauð, klifur o.fl. Dagskránni lýkur svo með alvöru skátakvöldvöku kl 17:30.
SÉRLEGUR GESTUR MENNINGARNÆTUR.
Norræna félagið á Íslandi heldur uppá 90. ára afmæli sitt á Menningarnótt. Í tilefni þess býður Reykjavíkurborg Norræna félaginu að ganga í bæinn og mun Tjarnarsalur Ráðhúss Reykjavíkur fyllast af fjölbreyttu lífi þegar sýning um Norðurlöndin í máli og mynd verður opnuð á norrænu höfuðborgarmóti. Torghátíð verður svo á Óðinstorgi þar sem boðið verður uppá fjölbreytta tónlistardagskrá og önnur skemmtiatriði sem sæmir öldnum unglingi.
MYNDLIST Í SALTFÉLAGINU
Í Saltfélaginu við Grandagarð verður mikil sýning þar sem koma saman myndlistamenn úr öllum áttum. Meðal listamanna eru Kitty von Somtime, Sigurður Sævar Magnúsarson, Sigurður Örlygsson og Sigurður Þórir Sigurðsson, Fitore Berisha og Hulda Hlín Magnúsdóttir. Auk þess munu rithöfundar lesa upp úr verkum sínum og Sykur og aðrir tónlistarmenn halda uppi stemningu með tónlist sinni.
AFMÆLISVEISLA Í GALLERÍ FOLD
Gallerí Fold hefur verið metnaðarfullur þátttakandi í Menningarnótt frá upphafi. Í tilefni af 20 ára Gallerí Foldar verður þar að finna viðamikla dagskrá allan daginn fyrir alla aldurshópa. Skutlukeppni fyrir börnin, ratleikir, uppboð, happdrætti, listamenn að störfum og tónlist svo að eitthvað sé nefnt. Boðið verður upp á 20 metra langa súkkulaðiköku og kaffi.
TÓNLEIKAR AF ÝMSUM TOGA
Að vanda verður mikið framboð af tónlist á Menningarnótt. Í Iðnó spila tónlistarmenn á borð við Elízu Newman, Sparkle poison og Ágústtóna. Í Tjarnarbíó verður litháenska hljómsveitin AVASPO með tónleika ásamt Ljótakór, rokkað verður á Járnbrautin á Hómaslóð og í Hörpu munu óma fjölbreyttir tónar Sinfóníunnar, Airwaves hljómsveita, Lenu og Niclas frá Færeyjum, Jazzhátíðar og margt fleira.
Bylgjan og HljóðX bjóða upp á tvenna tónleika á Ingólfstorgi. Um daginn stígur m.a Friðrik Dór á stokk og um kvöldið þenja Sálin Hans Jóns míns, Nýdönsk, Tilbury og Jón Jónsson raddir sínar. Við Arnarhól leiða Rás 2, Exton og Vodafone saman hesta sína og bjóða uppá dagskrá frá kl. 20:30 þar sem fram koma Eivör Pálsdóttir, Retro Stefson, KK og Jónas Sigurðsson og Ritvélar framtíðarinnar.
FLUGELDASÝNING OG MYNDSTREYMI Í BOÐI VODAFONE
Menningarnótt lýkur að vanda með glæsilegri flugeldasýningu í boði Vodafone. Flugeldum verður skotið upp á hafi úti og Hjálparsveit skáta sér um framkvæmdina. En það verður ekki eina aðkoma Vodafone því í ár mun fyrirtækið gera þátttöku gesta hærra undir höfði með því að birta myndir þeirra frá hátíðinni, merktar Mennignarnótt á Instagram, á sérstakri sjónvarpsrás og vef Vodafone.
Þetta er að sjálfsögðu aðeins örlítið brot af öllum þeim atriðum sem í boði eru. Ítarlega dagskrá má finna á www.menningarnott.is eða í pdf skjali með því að hafa samband við verkefnastjórn.
GÖMLU HVERFAHLUTARNIR
Dagskrárkerfi Menningarnætur á vefsíðu hátíðarinnar www.menningarnott.is gerir gestum kleift að finna og merkja við áhugaverða atburði á mjög einfaldan og skilvirkan hátt. Í ár hefur nýjum leitarflokki verið bætt við en auk þess möguleika að skoða dagskránna eftir tímasetningu og flokkum s.s tónlist, sviðslist og sjónlistum þá er nú hægt að skoða hana eftir hverfahlutum s.s. Skuggahverfinu, gömlu höfninni, Kvosinni, Þingholtinu, gamla austurbænum og Vatnsmýrinni.
Til þess að vera með dagskrá Menningarnætur við höndina á hátíðardaginn sjálfan má nú einnig opna vefsíðu hátíðarinnar í símanum og bæta /m (skástrik og m) aftan við vefslóðina. Ef valið er að setja vefslóðina í flýtileið í símanum ("Add to Homescreen" í "Bookmarks") opnast sá möguleiki að nálgast dagskránna á hátíðardaginn sjálfan í 200 metra radíus út frá eigin staðsetningu hverju sinni.
MENNINGARNÆTURPOTTURINN
Landsbankinn hefur verið máttarstólpi Menningarnætur frá upphafi. Árið 2008 hófu Landsbankinn og Höfuðborgarstofa samstarf um Menningarnæturpott Landsbankans. Framlag Landsbankans til Menningarnætur rennur beint í pottinn og þaðan til þátttakenda. Með Menningarnæturpottinum er markmiðið að veita fjölbreyttum hugmyndum brautargengi á hátíðinni og gefa fleiri hugmyndasmiðum kost á því að sýna hvað í þeim býr með hóflegum styrkjum. Umsóknir hafa aldrei verið fleiri en í ár þegar tæplega 200 aðilar sóttu um fjármagn en 35 fengu styrk. Sérstök menningardagskrá verður einnig í útibúi bankans í Austurstræti 11 eins og fyrri ár.
GÖTULOKANIR
Á Menningarnótt er miðborgin ein allsherjar göngugata og því meira og minna lokuð fyrir. Er það gert til þess að tryggja öryggi bæði gangandi og akandi vegfaranda á þessum fjölsótta hátíðardegi. Við hvetjum gesti Menningarnætur að nota önnur farartæki en einkabílinn til að komast á hátíðasvæðið (t.d. Strætó eða hjól) og þeim sem vilja helst nota bílinn bendum við á bílastæði á Stjörnureit, Höfðatorgi, á Háskólasvæðinu, Granda og á Skólavörðuholti. Eins og lög gera ráð fyrir verður sektað fyrir ólöglegar bílastöður og þeir bílar sem hindra aðgengi lögreglu, sjúkrabíla og slökkvuliðs verða dregnir í burtu svo unnt sé að tryggja aðgengi þessara öryggisaðila ef óhapp ber að.
FRÍTT Í STRÆTÓ Á MENNINGARNÓTT
Til að minnka umferð og auka öryggi hátíðargesta bjóða sveitafélögin ókeypis í strætó á Menningarnótt. Það hefur sýnt sig að á hátíðardaginn nýta sífellt fleiri sér þennan umhverfisvæna ferðamáta til að komast í miðbæinn en um 100.000 farþega nýttu sér hann í fyrra. Í ár mun strætó stoppa á Gömlu Hringbraut fyrir ofan BSÍ en þaðan er stutt inn að miðju hátíðarsvæðisins. Gestir Menningarnætur eru hvattir til að skilja bílinn eftir heima eða leggja bílnum þar sem eru stór og rúmgóð stæði svo sem við skóla, stóra vinnustaði eða íþróttamannvirki þar sem biðskýli eru í nálægð og taka strætó í bæinn. Eftir flugeldasýningu mun allur vagnfloti ferja gesti heim úr miðbænum.