Fundur með Lögreglunni á höfðuborgarsvæðinu

Fundur með Lögreglunni á höfðuborgarsvæðinu

Á dögunum var fundur með Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu hér í Vesturbæ. Fundurinn var haldinn í Hagaskóla og var ágæt mæting og líflegar umræður sem sköpuðust meðal gesta.

Lögreglan fór yfir ýmsar tölur sem tengjast Vesturbænum en hér að neðan eru nokkrar tölur sem tengjast okkar hverfi:

  • Innbrotum hefur fækkað um 22% frá 2007
  • Ofbeldisbrotum hefur fækkað um 27% frá 2007
  • Eignaspjöllum hefur fækkað um 28% frá 2007
  • Umferðarslysum hefur fækkað um 36% frá 2007

Hvað þjófnað varðar er sama niðurstaðan þar, tölur lögreglunnar sýna fram á að fjöldi tilkynntra þjófnaða frá janúar til október 2009 til 2012 hefur lækkað um tæp 10% frá árinu 2009 en stendur í stað miðað við árið 2011.

Fjöldi tilkynntra þjófnaða/innbrota á heimili frá janúar til október 2009 til 2012 er á sama veg, allar tölur eru að lækka og hefur fjöldi þjófnaða lækkað um töluvert frá árinu 2009.

Eina talan sem hækkar er fjöldi tilkynntra ofbeldisbrota en þar hækkar talan lítillega milli ára.

Þegar kemur að umferðarmálum er sama uppá teningnum þar. Allt virðist vera á réttri leið og er sama á hvaða tölur er litið að þær lækka allar, hvort sem það er tölur hjá þeim sem aka undir áhrifum áfengis eða fíkniefna eða annað sem snýr að umferðarlagabrotum.

Við hér í Vesturbænum erum afar ánægð með þróun mála hjá okkur, en við skulum ekki gleyma okkur og fagna lengi, því við verðum stöðugt að vera á tánum hvað þessi mál varðar. En það er samt afar ánægjulegt að sjá að all flestar tölur virðast vera á niðurleið og þökkum við lögreglunni fyrir þeirra framlag í forvarnarmálum í Vesturbænum og sýnileika þeirra sem og íbúum í Vesturbænum.

Við hvetjum alla til að fylgjast með upplýsingum frá lögreglunni en það má gera inn á facebook síðu þeirra

 www.facebook.com/logreglan.