Fundur lögreglustjóra með íbúum Vesturbæjar

Hinn árlegi hverfisfundur lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu með íbúum Vesturbæjar verður haldinn í Hagskóla 5. nóvember n.k. kl. 16.00. Á fundinum verður farið yfir stöðu mála í Vesturbæ ásamt því að starfsmenn embættisins kynna sig og starfsemina.

Eftir kynningu lögreglunnar munum við fá Fjólu Guðjónsdóttur sem er forstöðumaður forvarna hjá Sjóvá, en hún mun fara yfir nágrannavörsluna og er því upplagt að þeir sem ekki hafa tekið nágrannavörsluna upp í sínu hverfi eða götu, að afla sér frekari upplýsinga um kosti þessa eftirlits. Einnig munum við fá fulltrúa frá þeim sem hafa verið með nágrannavörslu um nokkurn tíma til að segja sína upplifun og hvernig til hefur tekist.

Eftir fundinn geta þeir sem vilja koma nágrannavörslunni á hjá sér eða kynna sér hana enn frekar, fengið upplýsingar hjá Herði Heiðari, íþrótta- og tómstundaráðgjafa Vesturgarðs.

Hvetjum alla til þess að mæta og taka þátt.

 

Hörður Heiðar Guðbjörnsson

Íþrótta- og tómstundaráðgjafi, Vesturgarði