Fundur Lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins með íbúum Árbæjar, Grafarholts og Úlfarsárdals
Fundur Lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins með íbúum Árbæjar, Grafarholts og Úlfarsárdals
Málefni Árbæjar, Norðlingaholts, Grafarholts og Úlfarsárdals voru til umfjöllunar á fundi í félagsmiðstöðinni Hraunbæ 105, þriðjudaginn 13. nóvember sl. Farið var yfir þróun brota í þessum hverfum, en ástand mála er nokkuð misjafnt eftir því hvar borið er niður. Þannig hefur innbrotum í Árbæ fækkað frá árinu 2007, en á umræddu tímabili hefur ekki orðið sama jákvæða þróunin í Grafarholti og innbrotum þar fjölgað. Eignaspjöllum í Grafarholti hefur hins vegar fækkað um meira en helming frá árinu 2007 á meðan þau virðast standa í stað í Árbæ. Slysum á vegfarendum í báðum þessum hverfum hefur aftur á móti fækkað allnokkuð.
Það var Árni Þór Sigmundsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn og stöðvarstjóri á lögreglustöð 4, sem kynnti afbrotatölur á fundinum, en hann sótti lykilfólk í hverfunum þremur. Kristján Ólafur Guðnason, aðstoðaryfirlögregluþjónn og yfirmaður umferðardeildar embættsins, fór yfir það sem sneri að umferðarmálum, en auk þeirra svaraði Hörður Jóhannesson aðstoðarlögreglustjóri einnig spurningum fundargesta. Við þetta tækifæri voru einnig kynntar niðurstöður úr netkönnun, sem framkvæmd var í sumar, en yfirskrift hennar er Reynsla íbúa höfuðborgarsvæðisins af lögreglu, öryggi og afbrotum. Þess má geta að fundurinn á þriðjudag var sendur út í beinni útsendingu á netinu, sem er tilraunaverkefni lögregluembættisins á höfuðborgarsvæðinu.
Nánari tölulegar upplýsingar er hægt að nálgast með því að smella hér.
Ágætu íbúar! Takið vel eftir!
Ef óskað er eftir skjótri aðstoð lögreglu skal undantekningarlaust hringja í 112. Ef erindið er af öðrum toga, og þolir e.t.v. einhverja bið, vinsamlegast hafið samband við þjónustuver lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í síma 444 1000. Sömuleiðis er hægt að koma upplýsingum á framfæri um hvaðeina með því að senda tölvupóst á netfangið abending@lrh.is.
Kíkið einnig á facebook síðu lögreglunnar:
https://www.facebook.com/logreglan?fref=ts