Frítt í sund fyrir börn

Íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum þann 14. desember 2012 að veita börnun að 18 ára aldri frían aðgang í laugarnar í Reykjavík frá 20. desember næstkomandi til og með 31. janúar 2013.

Íþrótta- og tómstundaráð vill með þessari tillögu  hvetja börn til sundiðkunar í jólaleyfi skólanna og í mesta skammdeginu. Tilvalið er fyrir fjölskyldur að sækja saman laugarnar yfir hátíðarnar, enda afgreiðslutími lauganna mikill.