Friðsamleg dansgleði í Viðey, laugardag 1. desember kl. 14
Friður og fjölmenning í Viðey
Fátt er betur til þess fallið að sameina kynslóðir og fólk af ólíku þjóðerni en dans, en það er hugmyndin með fjölmenningarlegum viðburði í Viðey laugardaginn 1. desember þar sem ólíkir dansar verða stúderaðir og stignir. Dagskráin í heild sinni er byggð á hinu magnaða ljósaverki Yoko Ono, Friðarsúlunni og orðunum Hugsa sér frið, sem áletruð eru á 24 tungumálum á súluna sjálfa.
Í dagskránni mun sýningarflokkur frá Listdansskóla Hafnarfjarðar kynna þrjá afar ólíka dansstíla; ballett, diskó og nútímadans og bjóða í kjölfarið upp á skemmtilega danssmiðju þar sem þátttakendum er kenndur einfaldur dans sem tengist gleði og friði. Hér gefst einstakt tækifæri fyrir börn og fullorðna að dansa og gleðjast og sameinast undir merkjum friðarins. Ef veður og vindar eru hagstæðir lýkur dagskránni með dansi við Friðarsúluna sjálfa. Umsjón með danssmiðjunni hefur Eva Rós Guðmundsdóttir dansari og skólastjóri Listdansskóla Hafnarfjarðar.
Ferja siglir frá Skarfabakka kl. 13:15, 14:15 og 15:15 og frá Viðey á klukkutímafresti frá kl. 13:30 – 16:30. Ef veður leyfir siglir ferjan einnig frá Skarfabakka kl.17.30 með þá sem vilja hugsa um frið og dansa við Friðarsúluna þegar kveikt er á henni klukkan 16:45. Ferjutollur og þátttökugjald er kr. 1.000 fyrir fullorðna og kr. 500 fyrir börn. Innifalið í verðinu er danssmiðjan og danssýningin. Í Viðeyjarstofu verða ýmis girnileg tilboð á veitingum í tilefni dagsins.
Dagskráin er samstarfsverkefni Viðeyjar, Listasafns Reykjavíkur, Borgarbókasafnsins og Listdansskóla Hafnarfjarðar.