Friðsælir atvinnu- og íbúðareitir
Tvær kynningar fyrir hagsmunaaðila vegna breytinga á deiliskipulagi voru haldnar í gær, 19. september. Sú fyrri fjallaði um Brynjureit - sem afmarkast af Laugavegi, Vatnsstíg, Hverfisgötu og Klapparstíg og seinni kynningin var fyrir Hljómalindareit - sem afmarkast af Laugavegi, Klapparstíg, Hverfisgötu og Smiðjustíg.
Fundirnir voru vel sóttir og áhyggjur fundargesta voru nokkrar og snérust flestar um hvers konar starfsemi yrði í húsnæði reitanna. Það kom skýrt fram að gert væri ráð fyrir að þarna yrði blönduð atvinnu- og íbúðabyggð þar sem kyrrð yrði komin á atvinnustarfsemi fyrir miðnætti. Hugmyndir eru um að portin sem þarna eru verði á daginn lífæðar að atvinnu- og menningarlífi á svæðinu en að eftir lokun verði þetta einkasvæði þeirra sem þarna búa.
Margar hugmyndir voru viðraðar á fundinum m.a. ábending frá Tinnu Gunnlaugsdóttur, þjóleikhússtjóra, um að rífa bílahús við Traðarkot niður og svæðið fegrað líkt og gert hefur verið í nágrannalöndum okkar. Það kom fram hjá starfsmönnum skipulagssviðs að framtíðarstefnan væri að bílar væru neðanjarðar og fólk ofanjarðar.
Nánari upplýsingar um skipulag reitanna.
Auk þess er hægt að senda ábendingar á;