ATH: Þessi frétt er eldri en tveggja ára gömul.
Framtakssemi í félagsvistinni
Þær Ingveldur Valdimarsdóttir og Herdís Jónsdóttir eru forsprakkar þess að koma á fót félagsvist að nýju í félagsmiðstöðinni Vesturreitum á Aflagranda 40. Er þetta gott dæmi um sjálfsprottið félagsstarf sem félagsmiðstöðin vinnur eftir. Þær Ingveldur og Herdís halda utan um starfið með stuðningi miðstöðvarinnar.
Félagsvistin hefst mánudaginn 1. október kl. 13.30 og verður vikulega í vetur. Verð: 150 kr.
Við hvetjum alla til að mæta og styðja við þetta flotta framtak!