Framkvæmdir á götum á morgun

Á morgun, þriðjudaginn 17. júlí verða í gangi viðhaldsframkvæmdir á götum í Reykjavík, ef veður leyfir.



MALBIKUN:   Malbikunarstöðin Höfði hf. mun vinna við malbikun á Skeiðarvogi milli Suðurlandsbrautar að brú yfir Miklubraut.  Báðar akstefnur. Götunni verður lokað á meðan.  Byrjað verður klukkan 9 að malbika vestari akbrautina, hin verður síðan malbikuð í kjölfarið.  Lokað verður fram eftir degi.

FRÆSUN:   Drafnarfell ehf. mun vinna við fræsingu á Stekkjarbakka milli Breiðholtsbrautar og Þarabakka.  Byrjað verður um klukkan 9 og götunni þá lokað. Búist er við að hægt verði að opna aftur um hádegi.

Reykjavíkurborg biður vegfarendur um að sýna þolinmæði og biðst afsökunar á töfum og óþægindum sem kunna að verða vegna framkvæmdanna.