Framfarahlaup Melabúðarinnar
Þann 17. júlí var Framfarahlaup Melabúðarinnar í Vesturbæ við sundlaug Vesturbæjar fyrir börn 12 ára og yngri. Þeir sem standa á bak við þetta framtak eru gamlir frjálsíþróttaafreksmenn, m.a Gunnar Páll Jóakimsson og Fríða Rún Þórðardóttir. Gunnar Páll er þjálfari Kára Steins Karslssonar ólympíufara ásamt því að vera þjálfari Anítu Hinriksdóttur sem er mikið framtíðarefni. Fjölmargir krakkar voru saman komin til að spreyta sig og taka þátt. Veðrið lék við hvern sinn fingur og var þetta afar vel heppnaður dagur þar sem fólk víðsvegar af höfuðborgarsvæðiu dreif sig með börn sín til þess að taka þátt. Allir fengu eitthvað gott í poka frá Melabúðinni sem var aðal styrktaraðili að þessu sinni. Við vonum að þetta sé komið til að vera um ókomin ár.
Skoðið myndirnar hér til hliðar.