Framboðsfundur í Iðnó vegna kosninga í fjölmenningarráð Reykjavíkurborgar í kvöld
Fjölmenningarþing Reykjavíkurborgar verður haldið í annað sinn laugardaginn 10. nóvember nk. í Borgarleikhúsinu. Markmiðið með þinginu er að bæta þjónustu Reykjavíkurborgar við innflytjendur. Innflytjendum er boðið að koma og hafa áhrif á hvernig bæta megi þjónustu Reykjavíkurborgar með því að taka þátt í hringborðsumræðum. Niðurstöður þingsins verða hafðar til hliðsjónar við umbætur þjónustunnar.
Á þinginu verður ennfremur kosið í fjölmenningarráð Reykjavíkur og hafa 16 einstaklingar gefið kost á sér til setu í ráðinu. Framboðsfundur vegna kosninga í fjölmenningarráð Reykjavíkur verður haldinn í Iðnó í kvöld mánudaginn 5. nóvember. Fundurinn hefst klukkan 20 og munu frambjóðendur kynna sig og er fundurinn öllum opinn.
Kosningar í nýtt fjölmenningarráð fara fram dagana 8. og 9. nóvember frá klukkan 10.00 til 17.00 í Ráðhúsi Reykjavíkur og á Fjölmenningarþingi Reykjavíkurborgar í Borgarleikhúsinu þann 10. nóvember frá klukkan 10.00 til 15.00. Allir íbúar Reykjavíkurborgar sem eru af erlendum uppruna og hafa náð 18. ára aldri hafa kosningarétt. Hægt er að kynna sér frambjóðendur á vefsíðu mannréttindaskrifstofu www.rvk.is/mannrettindi og í meðfylgjandi bæklingi Frambjóðendur til fjölmenningarráðs (PDF 3,22MB).
Það er mikilvægt að taka þátt í þinginu og kjósa í Fjölmenningarráð ef þú vilt vera með í að móta áherslur til framtíðar og gera þjónustuna enn betri.
Úrslit kosninga verða kynnt mánudaginn 12. nóvember í Ráðhúsi Reykjavíkur klukkan 13.00.