Forvarnardagur forsetans
Forvarnardagur forsetans var haldinn 31. október síðast liðinn og voru það allir 9. bekkingar landsins sem tóku þátt í þessum degi ásamt framhaldsskólum. Hagaskóli lét sitt ekki eftir liggja í þessum málum og tók virkann þátt. Þegar komið var í heimsókn í skólastofur krakkana var greinilegt að þarna var mikill áhugi á þessu málefni og allir gerðu sitt besta til að koma sínu á framfæri. Hér má sjá með í þessari frétt nokkrar myndir af vinnu nokkurra nemenda í Hagaskóla, en fróðlegt verður að sjá heildarniðurstöður þessa dags þegar þær hafa verið teknar saman.