Foreldrakaffi á forsendum barna
Í leikskólanum Ösp var á dögunum haldið óvenjulegt og skemmtilegt foreldrakaffi. Það sem var óvenjulegt við undirbúning þessa kaffisamsætis var að börnin tóku þar virkan þátt og höfðu mjög ákveðnar skoðanir á því hvernig taka ætti á móti foreldrum sínum. Haldnir voru barnafundir í litlum hópum þar sem m.a. var leitað svara við spurningunni; Hvernig viljið þið hafa foreldrakaffið? Börnin ræddu þessa hugmynd frá ýmsum hliðum og var einn fulltrúi frá hverjum hóp svo valinn til þess að fara á „Asparþing“ með skólastjórnendum til að kynna niðurstöðurnar.
Á Asparþingi tóku börnin þátt í samræðum um fyrirkomulagið og öllum ákvörðunum um hvernig skipulaginu skyldi hagað. Í ljós kom að börnin vildu gjarnan bjóða foreldrum sínum í leikskólann til að „leika sér og mála eftir hádegið til þess að geta farið snemma heim þann daginn“.
Einnig vildu börnin bjóða foreldrum upp á vöfflur með rjóma, baka snúða fyrir mömmu og pabba og bjóða upp á djús, mjólk og kaffi en í máli barnanna kom fram að kaffið væri mjög mikilvægt þar sem oft væri foreldrum boðið í kaffi "þar sem bara væri boðið upp á djús og mjólk".
Börnin útbjuggu síðan boðsmiða til að fara með heim og bökuðu snúða í leikskólanum. argir mættu í foreldrakaffið og áttu saman góða stund þar sem foreldrar voru mjög virkir í leik og starfi með börnunum. Mikil ánægja var hjá börnum, foreldrum og starfsfólki með þetta skemmtilega kaffiboð.